Staðsetning
Finndu okkur í Reykjavík
- Heimilisfang
- Lambhagavegur 19, 113 Reykjavík
- Sími
- (+354) 821-1311
- Netfang
- info@buggyadventures.is
- Opnunartími
- Virka daga: 09:00–16:00
- Helgar: 09:00–14:00

Starfsmannaferðir, hópefli, óvissuferðir, steggjanir og gæsanir. Við skipuleggjum buggyferð sem hentar hópnum – rétt utan við Reykjavík.
Því fleiri sem koma, því betra verð. Sendu okkur línu og við gerum tilboð sniðið að ykkar hópi.
Fyrir hvaða tilefni sem er
Hvort sem tilefnið er starfsmannadagur, árshátíð, ráðstefna, steggjun eða gæsun, þá er buggyferð í torfærum leið til að gera daginn ógleymanlegan.

Er ekki kominn tími til að verðlauna starfsfólkið? Brjótið upp hversdaginn eða teygið úr ykkur eftir langan dag á ráðstefnu. Við sjáum um búnað, leiðsögn og skipulag – þið sjáið um fjörið. Hentar hópum af öllum stærðum og engin reynsla af torfærum er nauðsynleg.
Fá tilboð → – Starfsmannaferðir & starfsmannadagur
Ekkert hristir hópinn betur saman en leðja, pollar og lækir. Allir keyra sömu leið, takast á við sömu brekkur og koma heim með sömu sögurnar – og kannski smá drullu á bak við eyrun.
Fá tilboð → – Hópefli
Er brúðkaup í vændum? Gæsir, leggið dekrið til hliðar og leyfið gæsinni að fljúga yfir hóla og hæðir. Steggir, hoppið upp í buggy, festið beltin og brunið af stað – þið getið drullað vel yfir stegginn í leiðinni!
Fá tilboð → – Steggjanir & gæsanir
Komið hópnum á óvart með buggyferð. Við sjáum um skipulag og leiðsögn svo þið getið notið þess þegar óvænta dagskráin kemur í ljós. Hentar líka vinahópum sem vilja bara fara saman út að leika.
Fá tilboð → – ÓvissuferðViljið þið gera meira úr deginum? Við getum græjað grill fyrir minni og stærri hópa. Við fáum algjöra meistara á staðinn sem elda ofan í ykkur krásirnar og svo er hægt að skála í góðum drykk í lok ferðar.
Spyrja um grillSegðu okkur frá fjölda þátttakenda, tilefni og dagsetningu og við sendum tilboð sem hentar hópnum.
Staðsetning
Opna í Google Maps