
Buggy Original
1 klst. buggyferð
Þú munt elska buggy vegna þess að…
- Klukkutíma ferðin fer með þig í gegnum stórbrotið landslag
- Þú færð að keyra fjórhjóladrifinn torfærubuggy á öruggasta og þægilegasta máta sem völ er á
- Það er ekki langt að fara því við erum staðsett aðeins 15 mínútur frá miðbæ Reykjavíkur
- Við förum leiðina upp á Hafrafell og sjáum stórkostlegt útsýni
Hvenær
Opið allt árið
Lengd ferðar
1 klukkustund
Skutlþjónusta
Við sækjum ykkur klukkutíma fyrir áætlaða ferð
Erfiðleikastig ferðar
Auðvelt
Aldurstakmark
6 ár (farþegi) / 17 ár (bílstjóri)
Nánar um ferðina
Þrátt fyrir að vera bara rétt utan við Reykjavík er þessi klukkutíma buggyferð með leiðsögn alveg einstök leið til að njóta íslenskrar náttúru. Spennið á ykkur beltin og búið ykkur undir að keyra á grófum malarvegum og í torfærum í nágrenni Esjunnar. Við keyrum yfir hæðir og hóla, gegnum ár og margt fleira skemmtilegt.
Þessi ferð er fyrir þá sem eru hrifnir af spennu, torfærum, leðju, drullu og fallegri náttúru. Ryk, leðja, vatnsgusur og jafnvel snjór og krapi er allt innifalið í verðinu!
Buggybílarnir okkar eru sjálfskiptir og með öryggisbelti svo að það er auðvelt og öruggt að keyra þá. Það eina sem þú þarft til að keyra er ökuskírteini og ævintýraþrá.
Hvað er innifalið?
- Klukkutími af buggykeyrslu
- Allur öryggisbúnaður (hjálmur, lambhúshetta, hanskar og vatnsheldur galli)
- Leiðsögumenn
Ekki innifalið
- Matur og drykkir

Myndir úr ferðinni
Algengar spurningar
Hér eru helstu spurningar og svör
Ég hef aldrei keyrt buggy. Er það erfitt?
Nei, það er ekkert mál að keyra buggy. Buggybílarnir okkar eru sjálfskiptir og þú lærir aðalatriðin á nokkrum mínútum.
Þarf ég einhverja sérstaka reynslu af torfærum til að keyra buggy?
Það þarf enga sérstaka akstursreynslu til að keyra buggy, einungis venjulegt bílpróf. Buggybílarnir okkar eru með sjálfskiptingu, góðri fjöðrun og veltigrind til öryggis. Buggy er með sömu stillingum og hver annar sjálfskiptur bíll eða trukkur, setjið bara í drive og keyrið af stað. Svo þarf einungis að ýta á einn takka til að skipta yfir í fjórhjóladrif.
Í hverju á ég að vera?
Vertu í fötum sem þér er sama þótt blotni eða verði skítug. Það er alltaf ágætis hugmynd að koma með aukaföt til að fara í eftir ferð. Vertu í hlýju innsta lagi, ull eða gerviefni eru best (ekki bómull).
Hvaða öryggisbúnað eruð þið með?
Við bjóðum upp á hjálma, hanska, lambhúshettur og vatnshelda galla.
Hvert er aldurstakmarkið fyrir bílstjóra? En farþega?
Aldurstakmarkið fyrir bílstjóra er 17 ár og 6 ár fyrir farþega. Bílpróf er skilyrði.
Er ökutækið öruggt?
Já. Buggy er mjög öruggt faratæki. Buggy er með lága massamiðju þannig að það eru minni líkur á að velta. Farþegar eru samt sem áður í fjögurra punkta öryggisbelti og sitja inni í verndandi veltigrind. Buggy er mun öruggara faratæki en fjórhjól.
Hvaða hraða er keyrt á?
Þú velur eigin hraða. Hópurinn ferðast alltaf á sama hraða og hægasti bílstjórinn. Ferðin er ekki kappakstur, þetta á að vera gaman og þú átt að geta notið útsýnisins.
Hvers konar tæki eruð þið með?
Hjá Buggy Adventures notum við fjórhjóladrifna buggybíla af gerðinni Can-Am 800cc. Þeir eru hannaðir með gæði, getu og öryggi í huga og eru með góða fjöðrun sem veitir þægilega upplifun í torfærum og á illfærum vegum. Buggybílarnir okkar eru nógu villtir fyrir reynda torfærukappa en jafnframt nógu þægilegir fyrir óreynda ökumenn. Þú munt vilja koma til okkar aftur og aftur!
Er hætt við ferðina ef það rignir?
Ekki séns! Það er meira að segja skemmtilegra í buggy ef það er blautt!




