ÞÚ MUNT ELSKA BUGGY VEGNA ÞESS AÐ..
Opið allt árið
2,5 klukkutími
Við sækjum klukkutíma fyrir áætlaða ferð
Auðvelt
6 ár (farþegi) / 17 ár (bílsjóri)
Ertu að leita að meiri áskorun og lengri skemmtun? Í Buggy Extra, lengri ferð með meiri leiðsögn, færðu auka keyrslutíma og það er alveg einstök leið til að upplifa enn meira af fjöri og þessu geggjaða landslagi sem finnst í nágrenni Reykjavíkur.
Helltu þér í fjörið í góðum félagsskap, setjist inn í tveggja sæta buggy og keyrið að hengill. Við keyrum á grófum malarvegum og slóðum upp í fjöllin. Buggy Extra er snilld fyrir þá sem elska torfærur. Ryk, leðja, og jafnvel snjór og krapi er allt innifalið í verðinu!
Vetrarbuggyferðir eru líka frábær skemmtun! Samt sem áður getur orðið kalt að sitja lengi í buggybíl og þrátt fyrir að við reynum okkar besta til að halda ykkur heitum og þurrum í pollagöllum þá gæti 1-klst ferð kannski verið nóg fyrir kuldaskræfur?
Buggy bílarnir okkar eru sjálfskiptir og með öryggisbelti svo að það er auðvelt og öruggt að keyra þá. Það eina sem þú þarft til að keyra ökuskírteini og ævintýraþrá.
Hér eru helstu spurningar og svör
Nei, það er ekkert mál að keyra buggy. Buggybílarnir okkar eru sjálfskiptir og þú lærir aðalatriðin á nokkrum mínútum.
Það þarf enga sérstaka akstursreynslu til að keyra buggy, einungis venjulegt bílpróf. Buggybílarnir okkar eru með sjálfskiptingu, góðri fjöðrun og veltigrind til öryggis. Buggy er með sömu stillingum og hver annar sjálfskiptur bíll eða trukkur, setjið bara í drive og keyrið af stað. Svo þarf einungis að ýta á einn takka til að skipta yfir í fjórhjóladrif.
Vertu í fötum sem þér er sama þótt blotni eða verði skítug. Það er alltaf ágætis hugmynd að koma með auka föt til að fara í eftir ferð. Vertu í hlýju innsta lagi, ull eða gerviefni eru best (ekki bómullarefni).
Við bjóðum upp á hjálma, hanska, lambhúshettur, stígvél og vatnshelda galla.
Aldurstakmarkið fyrir bílstjóra er 17 ár og 6 ár fyrir farþega. Bílpróf er skilyrði.
Já. Buggy er mjög öruggt faratæki. Buggy er með lága massamiðju þannig að það eru minni líkur á að velta. Farþegar eru samt sem áður í 4 punkta öryggisbelti og sitja inni í verndandi veltigrind. Buggy er mun öruggara faratæki en fjórhjól.
Þú velur eigin hraða. Hópurinn ferðast alltaf á sama hraða og hægasti bílstjórinn. Ferðin er ekki kappakstur, þetta á að vera gaman og þú átt að geta notið útsýnisins.
Hjá Buggy Adventures notum við fjórhjóladrifna Buggybíla af gerðinni CAN AM 800cc. Þeir eru eru hannaðir með gæði, getu og öryggi í huga. Báðar týpur eru með góða fjöðrun sem veitir þægilega upplifun í torfærum og á illfærum vegum. Buggybílarnir okkar eru nógu villtir fyrir reynda torfærukappa en jafnframt nógu þægilegir fyrir óreynda ökumenn og ættu ekki að valda neinum vonbrigðum. Þú munt vilja koma til okkar aftur og aftur!
Ekki séns! Það er meira að segja skemmtilegra í buggy ef það er blautt!