Buggy Original
ÞÚ MUNT ELSKA BUGGY VEGNA ÞESS AÐ..
- Klukkutíma ferðin fer með þig í gegnum stórbrotið landslag
- Þú færð að keyra fjórhjóladrifinn torfærubuggy á öruggasta og þægilegasta máta sem völ er á
- Það er ekki langt að fara því við erum staðsett aðeins 15 mínútur frá miðbæ Reykjavíkur
- Við förum leiðina uppá Hafrafjall og sjáum stórkostlegt útsýni
HVENÆR:
Opið allt árið
LENGD FERÐAR:
1 klukkutími
SKUTLÞJÓNUSTA
Við sækjum klukkutíma fyrir áætlaða ferð
ERFIÐLEIKASTIG FERÐAR:
Auðvelt
ALDURSTAKMARK:
6 ár (farþegi) / 17 ár (bílsjóri)
Nánar um ferðina
Þrátt fyrir að vera bara rétt utan við Reykjavík þá er þessi 1-klst buggy ferð, með leiðsögn, alveg einstök leið til að njóta íslenskrar náttúru. Spennið á ykkur beltin og búið ykkur undir að keyra á grófum malarvegum og í torfærum í nágrenni Esjunnar. Við keyrum yfir hæðir og hóla, gegnum ár og margt fleira skemmtilegt.
Þessi ferð er fyrir þá sem eru hrifnir af spennu, torfærum, leðju, drullu og fallegri náttúru. Ryk, leðja, vatnsgusur og jafnvel snjór og krapi er allt innifalið í verðinu!
Buggy bílarnir okkar eru sjálfskiptir og með öryggisbelti svo að það er auðvelt og öruggt að keyra þá. Það eina sem þú þarft til að keyra ökuskírteini og ævintýraþrá.
HVAÐ ER INNIFALIÐ?
- Klukkutími af buggy keyrslu
- Allur öryggisbúnaður (hjálmur, lambhúshetta, hanskar, vatnsheldur galli,)
- Leiðsögumenn
EKKI INNIFALIÐ
- Matur og drykkir
Myndir úr ferðinni
ALGENGAR SPURNINGAR
Hér eru helstu spurningar og svör
Nei, það er ekkert mál að keyra buggy. Buggybílarnir okkar eru sjálfskiptir og þú lærir aðalatriðin á nokkrum mínútum.
Það þarf enga sérstaka akstursreynslu til að keyra buggy, einungis venjulegt bílpróf. Buggybílarnir okkar eru með sjálfskiptingu, góðri fjöðrun og veltigrind til öryggis. Buggy er með sömu stillingum og hver annar sjálfskiptur bíll eða trukkur, setjið bara í drive og keyrið af stað. Svo þarf einungis að ýta á einn takka til að skipta yfir í fjórhjóladrif.
Vertu í fötum sem þér er sama þótt blotni eða verði skítug. Það er alltaf ágætis hugmynd að koma með auka föt til að fara í eftir ferð. Vertu í hlýju innsta lagi, ull eða gerviefni eru best (ekki bómullarefni).
Við bjóðum upp á hjálma, hanska, lambhúshettur, og vatnshelda galla.
Aldurstakmarkið fyrir bílstjóra er 17 ár og 6 ár fyrir farþega. Bílpróf er skilyrði.
Já. Buggy er mjög öruggt faratæki. Buggy er með lága massamiðju þannig að það eru minni líkur á að velta. Farþegar eru samt sem áður í 4 punkta öryggisbelti og sitja inni í verndandi veltigrind. Buggy er mun öruggara faratæki en fjórhjól.
Þú velur eigin hraða. Hópurinn ferðast alltaf á sama hraða og hægasti bílstjórinn. Ferðin er ekki kappakstur, þetta á að vera gaman og þú átt að geta notið útsýnisins.
Hjá Buggy Adventures notum við fjórhjóladrifna Buggybíla af gerðinni CAN AM 800cc. Þeir eru eru hannaðir með gæði, getu og öryggi í huga. Báðar týpur eru með góða fjöðrun sem veitir þægilega upplifun í torfærum og á illfærum vegum. Buggybílarnir okkar eru nógu villtir fyrir reynda torfærukappa en jafnframt nógu þægilegir fyrir óreynda ökumenn og ættu ekki að valda neinum vonbrigðum. Þú munt vilja koma til okkar aftur og aftur!
Ekki séns! Það er meira að segja skemmtilegra í buggy ef það er blautt!